Týsdagur - Hljóp á ný

Eftir nokkurra daga frí sökum bakverkja hljóp ég á ný, með samþykki sjúkraþjálfarans og næsti tími hjá honum á Þórsdag (fimmtudag); þá verða mér kenndar fleiri teygjur. Ég fór sama hring og í síðustu viku, þegar átti að hlaupa úr sér bakverkinn. Hlaupið gekk vel! Reyndi, til að byrja með, að fara rólega yfir, jók svo hraðann þegar ég var orðinn heitur en fann þó til þyngsla í fótum - þetta var nú ekkert met en hlaupatakturinn 5:40 og hlaupið í 41 mínútu. Er ég kom heim var teygt og sérstaklega á lendar- og lærvöðvum, þeir eru stuttir og fara illa með bakið. Líklegast verður ekkert af Powerade hlaupi í þessari viku en það koma önnur hlaup.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband