Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Laugardagur - Tíu km undir pressu og hlaupamánuður á enda

Fyrir lá að hlaupa tíu kílómetra undir tímapressu, hvern km á 5:20-5:09 mín. Þetta reyndi ég. Fór mína venjulegu leið við upphitun. Síðan var gefið í. Vonaðist til þess að hitta Haukana sem ætluð út á Álftanes; þá hitti ég þegar ég var búinn með þrjá kílómetra og gerðist þá héri fyrir Jóa og Díönu.

Hlaup mitt var þokkalegt en brekkur og færð þegar komið var út á Álftanes drógu úr hraða. Svo var göngustígurinn til baka frá Álftanesi til Hafnarfjarðar þakinn sköflum svo ekki var hægt að halda jöfnum hraða. Þannig að lokatíminn var 54:37 mín og hlaupatakturinn 5:27 mín/km. Hér er þá komið viðmið fyrir árið; tímar til að bæta.

Nú er fyrsti hlaupamánuður á enda og tölurnar er þessar: Hljóp í 17 klst og 41 mín og vegalengdin sem ég hljóp var samtals 173,5 km. Skrokkurinn er í þokkalegu ásigkomulagi, verkur í ökkla er að mestu horfinn en kálfar stífir og hásin stökk - verð að passa mig á að teygja meira. Þá er einnig spurningin að fara að gera styrkjandi æfingar.

Á morgun, sunnudag, verður hvílt og svo hefst ný hlaupavika á mánudaginn. Þá verður byrjað á "fartlek" hlaupi sem ég hefi aldrei náð að skilja. Býst við að ég taki frekar einhverja spretti; endurtaki fjórum sinnum 800 m. Svo verður langt hlaup á laugardegi, 11 mílur á rólegum hraða.


Föstudagur - Fallinn púls í frosti

Erfiðið skilar árangri! Púlsinn í þessu rólega liðkunarhlaupi, þegar frostið var næstum 7 gráður, var 142 en fyrir mánuði síðan, á sama hraða og sömu vegalengd í meiri hita, um 160. Úti var frekar kalt, eins og áður hefir komið fram, og óttaðist ég að þetta hlaup yrði til þess að ég fengi kuldabola í bakið; en hitakrem og brókargirtar treyjur og peysur héldu á mér hita. - Það var erfitt sökum kulda að halda aftur af hraðanum, átti að vera á bilinu 6:39-6:26 mín/km, og þegar heim var komið fór ég hvern km á 6:15. Þetta tókst með því að tipla stundum á stígunum. - Hitti einn óþekktan hlaupara við Sundhöllina og sá fór geyst í áttina út á Álftanes; kannski var hann að hlaupa í sig hita.

Harðstjórinn skipar mér að keppa í 10 km hlaupi á morgun og fara hvern km á bilinu 5:20-5:08. Ekki veit ég um neina keppni og verð ég þá bara að keppa við mig sjálfan. Ætla í nótt, í draumheimum, að skipuleggja leiðina, reyna að hafa hana eins slétta og hægt er. Vona bara að veðrið verði gott.


Fimmtudagur - Hlaupið undan kuldabola

Hlaup gærdagsins var í dag. Það var kalt, -4°C, og ég varð að hlaupa rösklega til að halda á mér hita. Þetta var svona: Upphitun, rösklega og svo rólegt í lokin. Þetta rólega í lokin var nú ekki svo rólegt því mér var kalt. - Á morgun rólegt til liðkunar og svo hratt á laugardaginn.

Miðvikudagur - Nuddaðir kálfar

Nennti ekki að hlaupa í kvöld; frestað því til morguns. Konan var mér svo góð á bóndadegi að gefa mér nudd og eftir vinnu lagðist ég á bekk inn í reykelsisreykmettuðu herbergi þar sem spiluð var ljúf panflaututónlist, og þar var ég strokin bæði ljúflega og ákveðið. Tekið var á aumum blettum og stífum kálfum - allt nuddað þar til ég komst í alsælu. Spriklaði þó nokkrum sinnum vegna taugaherpings. Mun örugglega endurtaka þetta því þetta dregur úr hættunni á meiðsl herji á auman skrokk. Og, á morgun verður hlaupið, ó! hve léttur í spori ég verð.

Þriðjudagur - Stífir kálfar fara langt rólegt um bæinn

Þetta var langt rólegt hlaup um bæinn, 11,5 km. Átti stundum erfitt með að halda aftur af hraðanum en með viljastyrk tókst það. Í upphafi hlaups voru kálfar stífir en urðu mýkri þegar á leið. Fór Setbergshring með aukalykkju um höfnina. Færðin var ágæt og nauðsynlegt að vera á keðjum.

Á morgun verður rösklegt þriggja km hlaup með upphitun og niðurskokki (Æ! finnst þetta orð: "niðurskokk" slæmt!)


Mánudagur - Loksins sprettir með kjuklingasamloku í maga

Loksins voru hlaupnir sprettir. Varla var þó farandi út; rok og rigning, en það lægði, hætti að rigna og byrjaði að snjóa. Þá dreif ég mig eftir að hafa verið á báðum áttum, búinn að borða tvær samlokur með kjúkling og osti. Ekki besti undirbúningur fyrir spretti.

Ekki var hægt að hlaupa á Kaplakrika, allt í klaka, svo ég fór út að Hrafnistu. Þar er gamalmennagata sem liggur í boga, út af aðalgötunni og til baka, og sárasjaldan keyrt eftir. Hún er næstum 800 metra löng og tilvalin til að taka spretti á. Þangað á ég eftir að fara aftur.

Dagsskipunin var fjórir 800 m sprettir á hlaupataktinum 5:06-4:54 mín/km. Þetta tókst mér, gerði aðeins betur, og fór ég sprettina, að meðaltali, á: 4:52, 4:50, 4:50 og 4:35. Á síðasta spretti gaf ég í og var líka móður eftir. Og ef þetta er fært yfir í Yasso-einingar þá hljóp ég hvern sprett á: 3:54, 3:52, 3:52 og 3:40 mín. Takist mér að hlaupa tíu slíka spretti á undir fjórum mín þá tekst mér að hleypa heit á undir fjórum klst

Á hlaupunum verkjaði mig í sköflunga - líklega vegna þess hve hratt og fast var stigið niður. Vonandi verður þetta mér ekki til trafala.

Á morgun verður rólegt hlaup, lullandi 11 km.


Laugardagur - Þriðju viku lokið

Engan eymingjagang! Þú skalt út! Þegar ég vaknaði bylti ég mér nokkrum sinnum, þóttist finna verk í vöðva, og hugsaði: Æ! ég hleyp nú varla svona! - En eftir smá stund sagði ég við sjálfan mig: Þú ert búinn að gefa fyrirheit um Laugavegshlaup og klára þetta maraþon sem þú hefur alltaf ætlað að þreyta. Farðu af stað og þetta verður bara fínt.

Ég skríddist hlaupagalla, bar hitakrem á aumu blettinna, og náði í spilastokkinn. Velti vöngum yfir hvort nota skyldi keðjur eða ekki - líklegast enn þá hált. Ákvað að engar keðjur skyldi nota enda snemma á ferðinni og þá tækifæri til að hlaupa á auðum götum. Fyrir lá að hlaupa 14,5 km á hægum takti. Ætlaði að hitta Haukamenn sem hlaupa stundum í áttina að Álftanesi; en þeir hafa farið eitthvert annað eða ég misst af þeim. Svo mitt hlaupa voru slaufur um Hafnarfjörð.

Annars eru helstu tölur þessar síðan æfingar hófust á ný. Þriðja vika er að baki. Í fyrstu viku voru hlaupnir 29 km, í síðustu viku 42,3 km og svo núna 46,1 km.  Ef löngu hlaupin á laugardögum eru borin saman þá kemur í ljós að púls hefur fallið úr 168 í 154, hraðinn er sá sami en lengjast aðeins, og fyrr en varir verður púls kominn niður í 140.

Næsta vika verður skemmtileg - þá eru sprettir. Fjórum sinnum 800 metrar. Hlaupaviku skal lokið með hröðu 10 km hlaupi.

 


Föstudagur - Liðkun fyrir langt

Færðin er slæm og gangstéttar ófærar - hálka og enginn sandur. Varð að fara út á götu, eins og í gær, og fór þar sem umferðin er lítil. Þetta var ekki langt, sex kílómetrar á hægum hraða, enda liðkunarhlaup. Á morgun verður langt, 14,5 km., en nú, þegar þetta er skrifað, er ég þreyttur og engin nenna. Í fyrramálið verð ég skrækur og fer út.

Í vinnunni var auglýst að í næsta mánuði hefst n.k. hreyfingarvika á landsvísu og þá ætlum við, eins og alltaf, að rústa keppninni. Nú mega þeir Einar og Eiríkur Smári vara sig!


Miðvikudagur - Hálkuhlaup í Hafnarfirði

Þetta var þriðja hlaupið í þessari viku og örlar fyrir þreytu. Færðin var slæm; hálka og lítil viðspyrna. Fáir stígar bornir sandi og neyddist, stundum, til að fara út á götu tl halda hraðanum upp. Fór inn í íbúðahverfin og hljóp frísklegur og þokkafullur um hafnfirskar einstefnugötur á móti umferð sem var nú engin. - Heim kominn át ég fiskiklatta (afgang frá kvöldmatnum) og teygði á stuttum hamstrengjum. - Feginn hvíldinni fram á föstudag, þegar hlaupið verður til liðkunar, og svo langt á laugardaginn.

Annars voru tölurnar þessar: 1,6 km í upphitun, 4,8 rösklega og 1,6 km rólega í lokinn. 


Þriðjudagur - Rólegt hlaup eftir próteindrykkinn nýja

Hlaupin í dag voru róleg - átta kílómetrar á hægum takti - og svo var farið í sund til að teygja á leggjum á meðan dóttir og frænka æfðu sund. Ugglaust er það fyndið að sjá karlhlunk í potti kastandi fótum öðru hvoru upp á brún og halla sér svo fram. Hlunk sem titrar og nötrar af vöðvaherpingi. Ég sé engan annan sundhallargest gera svona. Finn að þetta hefur einhver áhrif og ég er ekki ómögulegur í ökkla og get staðið í tröppunni og teygt á hásininni.

Á morgun verður rösklegt, aftur átta kílómetrar.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband