Laugardagur - Tíu km undir pressu og hlaupamánuður á enda

Fyrir lá að hlaupa tíu kílómetra undir tímapressu, hvern km á 5:20-5:09 mín. Þetta reyndi ég. Fór mína venjulegu leið við upphitun. Síðan var gefið í. Vonaðist til þess að hitta Haukana sem ætluð út á Álftanes; þá hitti ég þegar ég var búinn með þrjá kílómetra og gerðist þá héri fyrir Jóa og Díönu.

Hlaup mitt var þokkalegt en brekkur og færð þegar komið var út á Álftanes drógu úr hraða. Svo var göngustígurinn til baka frá Álftanesi til Hafnarfjarðar þakinn sköflum svo ekki var hægt að halda jöfnum hraða. Þannig að lokatíminn var 54:37 mín og hlaupatakturinn 5:27 mín/km. Hér er þá komið viðmið fyrir árið; tímar til að bæta.

Nú er fyrsti hlaupamánuður á enda og tölurnar er þessar: Hljóp í 17 klst og 41 mín og vegalengdin sem ég hljóp var samtals 173,5 km. Skrokkurinn er í þokkalegu ásigkomulagi, verkur í ökkla er að mestu horfinn en kálfar stífir og hásin stökk - verð að passa mig á að teygja meira. Þá er einnig spurningin að fara að gera styrkjandi æfingar.

Á morgun, sunnudag, verður hvílt og svo hefst ný hlaupavika á mánudaginn. Þá verður byrjað á "fartlek" hlaupi sem ég hefi aldrei náð að skilja. Býst við að ég taki frekar einhverja spretti; endurtaki fjórum sinnum 800 m. Svo verður langt hlaup á laugardegi, 11 mílur á rólegum hraða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband