Miðvikudagur - Letikasti vonandi lokið!

Hefi verið latur síðustu vikur. Hefi ekkert hlaupið - aumur í vinstra hné og leiðist það. Hefi ekki reynt að hjóla til og frá vinnu eftir það kólnaði, og mér leiðist í strætó. Mætti þó á sundæfingu og smaug gegnum vatnið; stímdi eitt skiptið á bakkann og fékk kúlu á höfuðið. Sundæfing á annað kvöld; þá ætla ég að vera vinur vatnsins og reyna bringubak á hlið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gamli,

Það sást ekkert af þér í gær!!  Vona að þú birtist á morgun og takir góða spretti.  Svo eru hjólaæfingar með Bjarti á miðvikudögum og sunnudögum þú kannski kíkir á þær. 

Kíktu á http://bjartur.c.is

Kveðja

HH

Helgi Hinriks (IP-tala skráð) 14.10.2009 kl. 14:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband