7.10.2009 | 22:37
Miðvikudagur - Letikasti vonandi lokið!
Hefi verið latur síðustu vikur. Hefi ekkert hlaupið - aumur í vinstra hné og leiðist það. Hefi ekki reynt að hjóla til og frá vinnu eftir það kólnaði, og mér leiðist í strætó. Mætti þó á sundæfingu og smaug gegnum vatnið; stímdi eitt skiptið á bakkann og fékk kúlu á höfuðið. Sundæfing á annað kvöld; þá ætla ég að vera vinur vatnsins og reyna bringubak á hlið.
Athugasemdir
Sæll Gamli,
Það sást ekkert af þér í gær!! Vona að þú birtist á morgun og takir góða spretti. Svo eru hjólaæfingar með Bjarti á miðvikudögum og sunnudögum þú kannski kíkir á þær.
Kíktu á http://bjartur.c.is
Kveðja
HH
Helgi Hinriks (IP-tala skráð) 14.10.2009 kl. 14:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.