Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Mánudagur - Hjólað og hlaupið hratt

Íþróttamennskan er algjör!

Ég fór út í morgun og hafði hugsað mér að hjóla eitthvað um bæinn. Í bakboka var ég með vatn og orkugel, tilbúinn til langrar útiveru. Eftir að hafa hjólað nokkra kílómetra breytti ég áætlun, fór upp á Kaplakrika og ákvað að reyna á sköflunginn á hlaupabrautinni - ég fann nefnilega innleggið sem á að laga allt og nú var að duga eða drepast.

Dagsskipunin var að hlaupa þrisvar sinnum þrjár mílur hratt, á bilinu 5:20-5:08 mín/km og með 400 metra hvíldarskokki á milli. Þetta gerði ég af krafti. Fór, að sjálf sögðu, hraðar en mér var uppálagt. Hljóp sprettina þrjá með vaxandi hraða. Fyrsti sprettur var 4:54 mín/km, næsti 4:39 og síðasti 4:36.

Þegar ég kom heim fór ég með dótturina og frænku hennar í sund. Frændi bættist í hópinn og hann djöflaðist með dömunum í rennibrautinni en ég lág í pottum og teygði.

Á morgun verður rólegt hlaup til hvíldar.


Páskadagur - Hjólað með dóttur

Til að öllu sé nú haldið til haga, þá hjólaði ég 12 km með dótturinni og hún réði hraða. Við hjóluðum um bæinn: út að stóru skipakví og til baka. Á morgun skal skv. æfingaráætlun hlaupa spretti en ég held á meðan sköflungurinn er að angra mig að ég taki nú frekar hjólið fram og fari í enn einn langan hjólatúr.

Laugardagur - Hjólað mót vindi á móts við karamelluísídýfu

Í dag fór ég út að hjóla í stað þess að hlaupa - hvíldi þreyttan og auman sköflung. Fyrst kom ég við á hjólaverkstæðinu og þar gerði piltur við afturbremsuna. Ótækt að vera á bremsulausu hjóli. Hann stillti líka gíra, rétti af gjörð og smurði keðju. Þá var ég ferðafær - en þar sem kaldir vindar blésu og hlaupatreyja ekki nægjanlega hlý fór ég heim og bætti á mig einni flíspeysu. Kominn heim ákvað ég að hringja í hestafrænda og bauð honum í hjólaferð; við fórum síðan í áttina að Reykjavík. Ég varð að kynna fyrir honum bestu ísídýfu sem ég hefi smakkað: karamelluísídýfa.

Við hjóluðum gegnum Garðabæ, yfir Kópavogsháls, frá Nauthólsvík út á Ægissíðu, niður á Ingólfstorg (borðuðum áðurnefnda ís), yfir á Lækjartorg (þar fengum okkur expressó og orkudrykk) og til baka næstum sömu leið og en fórum út fyrir Kársnesið í Kópavogi.

Samtals voru þetta 36 kílómetrar; meðalhraðinn um 20 km/klst. Meðalpúls fer lækkandi, kominn í 135.

Það verður hvílt á morgun. Í þessari viku hjólaði ég 60 km og hljóp 30, á samtals 6 klukkustundum. 


Föstudagur - Samlokuæfingar

Eftir heimilisstörf fór ég út að hlaupa. Rólega eina 6,5 km og ekki er ég ánægður með hægri sköflung. Grípa verður til einhverra róttækra aðgerða. Þegar ég kom heim úr hlaupi þótti mér ekki nóg komið svo ég fór út að hjóla. Síðast hjólaði ég inn í vinnu og ákvað ég að gera aftur. Prófaði nýja leið; líklega þá leið sem ég mun fara þegar þetta verður reynt fyrir alvöru. Ekki er þorandi að hjóla á akvegunum, sérstaklega þegar Arnarnesinu sleppir og gegnum Kópavog.

Á morgun skal hlaupið en bíst við að hjóla í staðinn. 


Miðvikudagur - Rösklegt styrktarhlaup

Stutt og ákveðið 6,5 km. Hitaði upp og hljóp svo 3,5 km á jöfnum hraða, hvern kílómetra, að meðaltali, á 5:01 mín.  Örlítill seyðingur í sköflungi sem hverfur þegar ég er orðinn vel heitur; held það sé nú vegna stífleika. Hljóp sem mest á grasi þar sem það var hægt. Er ég kom heim teygði ég vel á fótum (var skammaður fyrir að setja lappir upp á borð klæddur sportskóm) og nuddaði auma staðinn með olíu sem ég fékk. Lyktin er ekki eins slæm og þegar ég var á mig eplaedikið og íbúðin breyttist í táfýluvelli.

Á morgun verður hvílt - kannski fer ég að hjóla og svo í sund, var ég búinn að lofa dótturinni. Á föstudaginn langa er ekki langt hlaup. Heldur stutt til liðkunar en langt á laugardaginn.


Þriðjudagur - Hljóp með barni

Vor er í lofti og dóttirin kom með hjólandi í hlaupaferð. Þetta var í fyrsta skiptið í ár, sem hún fer með mér, og á örugglega eftir að koma oftar. Fyrir lág að hlaupa rólega eina átta kílómetra, og þá er ágætt að hafa skottu með - þá rýk ég ekki áfram. Að vísu varð ég að auka hraðann undir lokinn því ég gleymdi að slökkva á tímatökunni á meðan kjarnorka fékk sér að drekka. Við fórum út að Hrafnistu, þá með fram sjónum og enduðum svo á Víðistaðatúni. Þar hljóp ég nokkra hringi á grasinu til að klára hlaupið, á meðan lék hún sér. Ég var þreyttur í fótum eftir mitt rösklega hlaup í gær og þess vegna var ágætt að klára þetta á grasinu.

Á morgun er stutt hlaup. Upphitun, þá rösklegt og svo rólegt. Samtals 6,4 km.


Mánudagur - Tvíhleypt

Fyrsta hraða æfingin í nokkurn tíma. Það rigndi, og ég ætlaði varla að nenna út, en brýningarorð húsfrúar komu mér út úr húsi. Fyrir mér lág að fara tvisvar sinnum tvo og hálfan kílómetra, hratt. Hraðinn átti að vera á bilinu 5:20-5:08 mín/km en ég fór hraðar yfir en það. Hljóp hvorn sprett, að jafnaði, á 4:48 og 4:50 mín/km. Nú þegar ég er kominn heim er skrokkurinn fínn en fann aðeins fyrir verk í sköflungi en það var ekkert til að tala um.

Annars, svo öllu sé haldið til haga: þá hjólaði ég í gær. Inn í vinnu og til baka. Það eru næstum 11 km inn eftir og svo fór ég nokkrar lykkjur á leiðinni til baka. Samtals voru þetta næstum 28 km. Ég hjólaði inn eftir á 35 mínútum og veit að ég get betur - kominn tími til viðmiðunar. 

Svo eru sorgarfréttir: iPodinn minn er líklegast dauður. 


Laugardagur - Tölt á Kapla

Kominn aftur á byrjendareit í hlaupaprógrammi. Eftir að hafa sleppt úr löngum hlaupum um síðustu helgar ákvað ég að best væri að byrja upp á nýtt: fyrsta vikan af sextán er að baki. Nú fer ég þó kannski hraðar yfir.

Ég fór upp á Kaplakrika, og hljóp rólega eina 11,5 km bæði á grasi og braut. Fylgi þar ráðum reyndra hlaupara, á mjúku er best að reyna sig eftir meiðsl. Þetta var ágætt en fann aðeins fyrir í hægri sköflungi - vonandi bara stirðleiki. Reyndi hvað sem ég gat til að hlaupa hægt og hlaupatakturinn var um 6:22 mín/km (stoppaði til að tala við annan hlaupakarl en gleymdi að slökkva á skeiðklukkunni).

Á morgun tek ég því rólega - gæli þó við að hjóla og fara svo í sund. Á mánudaginn skal hlaupa hratt en ég sé til hvort verður úr því.


Fimmtudagur - Hlunkahlaupið fór fram í kvöld

Sprettleggur tók einn þátt í hafnfirska hlunkahlaupinu, kappið var ekki mikið. Hljóp rólega næstum 6,5 km. og átti erfitt með að halda aftur af hraðanum, en tókst. Þrátt fyrir langa hvíld var púls lágur og þrekið ágætt, samt varla til stórræða. Fór hring um hverfið. Stundum blés á móti og stundum með. Reyndi að vera sem mest á grasi þar sem það var hægt. Var með innlegg í skónum en reif þau fljótt úr því þau virtust ekki vera að gera neitt gagn. Kálfur fékk verk í kálfa en hann hvarf er innlegg voru farin.

Á morgun verður hvílt. Hleyp næst á laugardaginn.


Miðvikudagur - Hlunkahlaup í Hafnarfirði á morgun

Það verður hlunkahlaup í Hafnarfirði á morgun. Sköflungsskældur mun hlaupa létt; sköflungurinn er heill eftir meira en þriggja vikna hvíld, en rólegt verður það. Hreyfingarleysi gerir mig vitlausan - úr verður að bæta.

Hundraðogátta dagar í Laugavegshlaup og þeim fækkar, næstum sextán vikur, og í tilefni þess sótt ég mér nýtt prógramm til að hlaupa eftir.

Ásetningur minn um heilt í vormaraþoni fauk út um gluggann með sköflungsverk - fjárinn. Kannski hálft!


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband