Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
12.8.2008 | 19:02
Þriðjudagur - Rólegt hlaup, en þungur á mér
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2008 | 20:51
Mánudagur - Sprettir, loksins
Eins og áður hefur komið fram þá eru mánudagar dagar íþróttamennisins. Þá eru sprettir, og ég er meðal frjálsíþróttamanna. Ég fór upp á Kaplakrika og hljóp níu sinnum 400 metra með 200 metra hvíld á milli. Ruglaðist einu sinni og hvíld varð sprettur, þannig að einn sprettur varð hægari fyrir vikið. Annars var þetta nokkuð gott. Atti að vera á bilinu 4:38-4:28 km/mín en fór með vaxandi hraða - glennugangur. Hraðasti sprettur var 3:55 mín/km og held að ég hafi aldrei farið eins hratt á sprettæfingu.
Annars eru fór þetta svona: Vegalengd, tími, hlaupatakur og að lokum hraði.
400 1:45 4:22 mín/km = 13.71 km/t
400 1:43 4:17 mín/km = 13.98 km/t
400 1:51 4:37 mín/km = 12.97 km/t - ruglaðist á hvíld
400 1:43 4:17 mín/km = 13.98 km/t
400 1:41 4:12 mín/km = 14.26 km/t
400 1:38 4:05 mín/km = 14.69 km/t
400 1:38 4:05 mín/km = 14.69 km/t
400 1:34 3:55 mín/km = 15.32 km/t
400 1:47 4:27 mín/km = 13.46 km/t
Á morgun verður rólegt hlaup, 12 km.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.8.2008 | 13:27
Laugardagur - Ný áætlun lögð fram
Ein vika er til æfinga, önnur til hvíldar (verð víst að endurskoða þetta með hvíldina (sjá niðurlag)) og þá kapphlaup. Í dag var hlaupið langt eftir "nýrri" áætlun þar sem markmiðin eru breytt og fer hlaupandinn í maraþon í október og hálfa maraþonið, sem átti að vera heilt, verður hvetjandi æfingarhlaup þar til manndómsvígslan fer fram.
Undanfarna daga hef ég gert tvennt: hrært saman æfingaráætlunum, en þær eru allar af sama meiði - hratt, rólegt, hratt og langt, og þegar tækifæri gefast kastað fótum upp á borð hvar sem ég finn þau - i tíma og ótíma; og teygt! þetta, með teygjurnar, er nú ekkert nýtt. Held að teygjurnar séu að skila einhverju. Þær eru að minnsta kosti eins óbærilegar og áður ellegar auðveldara er að setja fót upp á borð.Í annað skipti, einnig um síðustu helgi, sí-setjandi markmið, þegar hlaupin urðu eitthvað skrítin og ég óttaðist verkinn - leit ég ei á Garminn fyrr en fimm lög höfðu verið spiluð að fullu í spilastokk - iPod - og skipti engu hversu löng eða stutt lögin voru. Með þessari klikkhausaaðferð kom mér oft á óvart að ég fór alltaf lengra og lengra. Eitt er þó alveg víst að hreinsa þarf í spilastokk, þar allt of mikið af rusli. Þá þarf ég einnig að setja saman eitthvað "blast" fyrir langa hlaupið. - Er þetta ekki hluti af æfingaráætluninni?
Á þeim tveimur vikum sem eru til kapphlaups verður svona farið að: (vika 1) sprettir á Kaplakrika - "íþróttamennið reynir sig", hægt hlaup til endurbótar eftir átökin við sprettina, rösklegt til hreinsunar, rólegt til að liðka sig og hægt langt á laugardegi, þá síðustu dagarnir fyrir árshátíðina - hlaupið mikla (vika 2) - brekkusprettir í alræmdri Öldugötu í Hafnarfirði, sem ég hef aldrei hlaupið, en þar hafa margir kappar reynt með sér, hægt til að hreinsa út óþveran, rösklegt með bakið beint, rólegt til að liðka sig fyrir átakið og loksins hálft maraþon - líklegur ásettur lágmarkstími ekki gefin upp.
Sem sagt, í dag: 19,3 km. Nokkrir hlauparar á ferli. Allir að hlaupa langt og hitti ég þá nokkra nokkrum sinnum. Á morgun, sunnudag, verður hvílt og svo sprettir á mánudaginn.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2008 | 20:49
Föstudagur - Rólegt hlaup í lok kvefviku á sumri
Þetta var rólegt liðkunarhlaup í lok kvefviku á sumri - fyrsta hlaupið í þessari viku. Þótt ég haldi því fram að ég hafi sigrað kvefið, nú með aðstoð ofnæmislyfja, er ég ekki að fullu laus við óþverrann enda spýtt nokkrum sinnum á leiðinni. Gætti þess þó að enginn væri nálægur er ég spjó!
Annars hafa verið teknar nokkrar ákvarðanir: Hálft maraþon verður hlaupið á afmælisdegi bróður míns þann 23ja! Hef ekki sett mér nein markmið með tíma (gerist er nær dregur)! Heilt verður í staðinn hlaupið á haustmaraþoni í október - deo volente! - og hef sótt mér nýja æfingaráætlun fyrir framtakið.
Á morgun verður langt hlaup, þó ekki 30 km eins og síðast, kannski næstum 20 rólegir!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.8.2008 | 19:34
Þriðjudagur - Ekkifrétt af hlaupum
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.8.2008 | 17:21
Laugardagur - Langt hlaup! Úff!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.8.2008 | 21:36
Föstudagur - Rólegt hlaup til liðkunar
Í kvöld, fyrir mat, var rólegt hlaup til liðkunar. Á morgun verður langt hlaup. Í kjölfar þess mun ég ákveða hve langt verður hlaupi í RM. Ég hef verið að teygja á hamstrengjum og veit ekki hvort þetta skilar einhverjum árangri; jú ætli það ekki - auðveldara að setja fót upp á borð og ekki eins vont. Þá tek ég nokkra snúninga, heimaofnar teygur fyrir nára.
Jæja, langt á morgun, fyrir hádegi.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)